|
�?tlönd!!
Fyrir 1633 dögum
|
01.10.2007 15:59:32 / Helena
Kæra fólk! Ég hef ákveðið að skipta um bloggsvæði og hef því verið undanfarna daga að gera nýju síðuna mína fína og loksins er hún tilbúin Ég kynni því með stolti þá nýju:
www.123.is/helenasm um leið og ég kveð þessa! Í bili allavega...en hver veit nema maður komi aftur hingað því mér þykir nú vænt um þetta kvikindi soldið Endilega kíkjiði við og skiljið eftir ykkur spor! Attlææ bleeeessss!
»
30.09.2007 14:03:41 / Helena
Já það er bara kominn sunnudagur og á morgun nýr mánuður að ganga í garð. Sem þýðir að eftir 3 daga á ég afmæli8) Hef svosem engin sérstök plön þann daginn nema opna pakkann frá mömmu og pabba sem er búinn að freista mín síðan ég kom hingað. (Lokaði hann ofan í skúffu til að þurfa ekki að horfa á hann) og svo er pakkinn frá Vilborgu & Co einhverstaðar á leiðinni yfir hafið hehe... Helgin var nú frekar tíðinda lítil, á föstudaginn var ég bara róleg hérna heima og gerði mest lítið. Á laugardaginn hinsvegar fórum við Magdi til Bristol í smá verslunarferð Ekkert smá mikið af búðum þar maður. Allar þessar helstu; risa H&M, RISA Debenhams, RISA RISA House of Fraser, Topshop, Next, Dorothy Perkins, Body Shop og fleira og fleira. Einnig var líka stórt mall með allskyns búðum Ég tók lest héðan frá Weston til Bristol, geðveikt klár að kunna á kerfið...svona næstum hehe Já svo hitti ég Magdi á einhverju kaffihúsi og þá hófst leiðangrið! Það var allt voðalega crowded inn í búðunum og allt of langar raðir allstaðar...og ég tala nú ekki um white trash líðinn sem var þarna um allt, sérstaklega þar sem voru miklar útsölur Appelsínu gult hár, já eða bleikt! 80's íþróttagallar og hvaðeina Þó það hafi verið rosa gaman að hafa einhvern með sér að versla þá held ég að ég fari bara ein næst nema náttla þegar ég fer til London. Það er svo mikið vesen að vera alltaf að fylgjast með hinum þ.e. til að týna viðkomandi ekki og svo nýtist tíminn bara miklu betur þegar maður er einn! Hinn þarf ekki að bíða á meðan maður mátar og þannig...Svo var hún líka meira að leita að einhverju ódýru á útsölum og svona en ég bara þoli ekki helv útsölur. Allt í rúst, of mikið af fólki og fötin eru flest algjört crap! Þannig mín skoðun er sú að versla almennileg föt á aðeins hærra verði (sem nær reyndar aldrei verðlagningunni á Íslandi) og eiga þá góð föt sem endast lengur og betur Smá verslunarpælingar Við borðuðum svo á KFC í hádeginu, vá hvað það var gott að fá loksins eitthvað sem maður þekkir VEL Um sex leytið þurftum við svo að hlaupa á rútustöðina því Magdi átti að taka rútu þá, maður var bara lafmóður eftir það. Frekar löng leið og fullar hendur af pokum! Og ég er ekki að grínast þegar ég segi að ég var bara með smá vott af harðsperrum í morgun og hálf brunna lófa eftir höldurnar á pokunum híhí. Beauty is pain en já ég veit, ég ÞARF að fara hreyfa mig eitthvað af viti til að fá ekki vott af hörrum eftir verslunarferð HAHA...en þær eru nú horfnar núna! Mæli með þessu sjampói & hárnæringu!! Ógó gott fyrir þá sem vilja æsa upp náttúrulegar krullur. Hér er ég svo í lestinni góðu... Gærkvöldið var svo ansi rólegt. Þau fengu kínamat sendan heim sem var ekkert smá góður! Alveg hreint uppáhaldið mitt hérna!! Um kvöldið horfði ég svo bara á vinkonur mínar í Desperató ásamt því að fara á smá you-tube fyllerí eins og Bessi kallar það. Merkilegt hvað maður finnur þarna! Síðan sofnaði minns bara snemma svona miðað við laugardagskvöld... Í dag fór ég svo með Eleanor í verlsunarferð. Alveg snarvitlaust að gera í þessari ofur stóru búð og versluðum við að vana alveg troðfulla körfu af mat! Ég setti fullt af spennandi mat í körfuna sem ég hlakka til að prófa  Og well ég keypti KRYDD! Þannig ég get kannski kryddað það sem ég bý til...Það var auðvitað ekki til Season All en ég fann samt eitthvað svipað sem heitir All Season hehe. Er einhver munur á k** og sk**? Nei hélt ekki...(afsakið orðbragðið  Já þetta ætti að vera nóg í bili. Það er svo ný síða í vinnslu kæru lesendur og verður hún tekin í gagnið og opinberuð á morgun held ég bara Er að prufa mig áfram í þessu, veit samt ekki afhverju ég vil skipta um síðu...á örugglega eftir að sakna þeirrar gömlu. En það er þá alltaf hægt að nota hana aftur. Hvað finnst ykkur, er kominn tími á nýja eða er þessi nógu góð bara?? Jæja er farin að borða roast beef...minnir að mér finnist það ekki spes en ég prófa allav. Veit ekki hvernig þau matreiða það! Bless í bili og veriði nú dugleg að kvitta eins og þið eruð búin að vera Smá óverdós á bleika litnum *gubb*
»
26.09.2007 21:13:22 / Helena
Jæja, þetta er önnur tilraun til að blogga...var að enda við að skrifa heilt blogg og búin að setja myndir í það og allt en nei nei það bara þurrkaðist allt út Þýðir ekki að pirra sig á því...byrja bara aftur! Ætla samt að hafa þetta stutt bara. Skólamálin standa þannig að ég fór til Weston á mánudaginn og fór í "interview" þar kom í ljós að þau eru ekki með enskunámskeið fyrir mig því að enskan mín á víst að vera of góð fyrir levelin sem þau eru að kenna...hvað er það?! Enskan mín er nú langt frá því að vera nógu góð finnst mér! En konan lagði til að ég færi til Bristol á enskunámskeið þar í staðinn. Það er jú aðeins lengra þangað en það verður að hafa það. Kosturinn er líka sá að það námskeið er "virtara" ef svo má að orði komast. Þ.e. skírteinið sem maður fær eftir að hafa tekið prófið hjá þeim er mjög vel séð þegar maður er að sækja um í háskóla. Ekki að það sé á planinu að fara í háskóla erlendis. En maður veit aldrei! Planið núna er að fara í Háskóla Íslands eftir eitt ár. Er strax farin að hlakka til hehe. Það verður svo gaman þegar við stelpurnar erum allar komnar í Reykjavíkina. Þá getum við gert eitthvað skemmtó Er oft að skipuleggja í huganum einhverja skemmtilega hittinga og svona! Svo verður komið eitt lítið beibí...sem á ekki eftir að fá neinn frið frá okkur Vúps aðeins út fyrir efnið...en já, það stendur semsagt til að hringja á morgun í University of Bristol og sækja um enskunámskeið. Það sem meira er, er að Magdi (sú sem við heimsóttum síðasta laugard.) er líka að fara á þetta námskeið og verður mjög sennilega í sama leveli og ég. Það kemur sér mjög vel! Ég held að ég taki rútuna fyrst þangað, er ekki alveg að meika það að keyra í þessari risaborg því það er örugglega ekki á hvers manns færi að rata þetta Já ég lofaði myndum, here you go:  eldhúsið, með smá country stíl. Enda búum við in the country.  Eldavélin er sko keppnis gott fólk   stofan  þetta er hún Kirsty prinsessa!  og þetta hann Ross tölvunörd!  og hér eru systkinin í tea-time. Að borða fiskifingur og einhvern viðbjóð  Það var þá ekki fleira að sinni. Eða jú eitt, ég hef mikið verið að pæla hvort ég eigi að læsa síðunni. Það koma hérna 100 heimsóknir á dag yfirleitt og ég veit kannski hverjir 30% af fólkinu er, sem er ekki nóg fyrir mig! Ég vil vita hverjir eru að koma hingað...og KREFST því þess að þið kvittið! Er ekki að meina að fólk þurfi aaaalltaf að kvitta þegar það kemur. En sumir virðast bara aldrei gera það. Koma svo  Ég hugsa málið aðeins lengur... Ætla að fara sofa í hausinn á mér!
»
25.09.2007 22:53:06 / Helena
Jamm og jæja! Fattaði allt í einu að ég var búin að segjast ætla setja heimilisfangið í síðustu færslu en ég gleymdi því víst! Svo hér er það: Rose Cottage, West Hewish, Weston-super-MareNorth Somerset, BS24 6RR, England Ekki seinna vænna fyrir ykkur að fara senda mér afmælisgjöf hehe Vá tíminn líður, ég verð 20 ára eftir viku nánartiltekið þann 3. október. 20 ÁRA! Skil þetta ekki, mér finnst ég vera ekki deginum eldri en 18....þarf virkilega að hugsa stundum þegar ég er spurð um aldur. Glatað að vera ekki heima þegar maður á svona stórafmæli Hefði viljað halda partý! En það verður víst ekki...ég baka samt án efa köku og opna pakkana mína. Ég er þegar komin með einn (sem ég kom með hingað, frá mömmu) og svo fór pakkinn frá Vilborgu og Co af stað í dag (hann komst ekki fyrir í farangrinum, greinilega eitthvað veglegt í honum ) Í dag: -vaknaði ég 7 og kom krökkunum í skólann -lagði mig eftir það í 2 tíma það var himneskt! -eldaði mér pasarétt. Hann var líka himneskur...loksins máltíð með BRAGÐI, þau vita ekki hvað krydd er hérna...ætli það fáist bara ekki eða..?!? -þvoði af krökkunum og straujaði allt eins og sannkölluð húsmóðir (skil ekki afhverju þarf samt að strauja ALLT) mér finnst það samt bara gaman! -náði í krakkana í rútuna... -lék við þau þangað til pabbi þeirra kom heim -borðaði kvöldmat... -horfði á TV á meðan Andy reyndi að laga vírusana í tölvunni minni..." /#$%&"#RUSL! Hehe kannski hræddi ég einhvern núna. Ég ætla nú ekki að hafa þetta blogg svona mikið nákvæmt um það sem ég geri Reyndar þó ég gerði það, hvaða máli skiptir það...mér er alveg sama hvort þið lesið þetta eða ekki Þetta er fyrst og fremst "dagbók" fyrir mig eins og áður hefur komið fram. Enginn er tilneyddur til að lesa þetta bull! Læt þetta duga í bili, þarf að fara sofa. Ég er jú klukkara á undan ykkur á Íslandinu góða. Blogga meira á morgun um skólamálin (sem urðu dáldið vesen) og kem með myndir af krökkunum loksins og einnig myndir hérna úr húsinu Svo stay tuned! Góða Nótt - Good Night - Buonas Noches - Gute Nacht Sko mig!! man samt án gríns ekki hvernig maður segir góða nótt á dönsku...er aaalveg búin að gleyma henni. En giska á God Natt eða e-ð. Vá það er kominn svefngalsi í mig, soldið steikt blogg! Sjáumst á morgun.
»
23.09.2007 17:33:51 / Helena
Jæja nú mig, helgin á enda. Á föstudaginn fórum við Veronika í smá bíltúr til að skoða Stonehenge sem er víst á topp 10 yfir frægustu staði í heimi! Mjög flott og gaman að hafa fengið tækifæri til að sjá þá því það tekur alveg 2 tíma að komast þangað og leiðin er meira en lítið flókin Andy lét okkur af lítið GPS tæki til þess að rata eftir þannig áður en við áttum að beygja einhverstaðar sagði tæki með Homer Simpson röddinni sinni: “when this yard ends, tuuuurn left!” o.s.frv. Ég lærði eitt nýtt orð í þessari ferð: roundabout sem þýðir hringtorg fyrir þá sem ekki vita Jámm eftir 2 tíma komumst við loksins að Stonehenge þar sem við fengum svona guide tæki til þess að maður geti hlustað á söguna! Mjög áhugavert. Skil ekki hvernig þeir fóru að því að koma þessum 5 tonna flykkjum fyrir þarna. Því ekki höfðu þeir vinnuvélar þarna mörg hundruð árum fyrir Krist…Já svo fórum við í borg sem heitir Salisbury og röltum þar um allt og skoðuðum risastóra kirkju, mjög flotta! Toppar þó ekki dómkirkjuna í Sevilla (Giralda) hún er örugglega sú langflottasta. Eftir röltið í Salisbury kom að því að fara heim. Haldiði ekki að helv andsk GPS tækið hafi frosið og ekki nokkur leið til að fá það til að virka aftur! Þannig við þurftum að gjöra svo vel að reyna að rata alla þessa leið til baka sem byrjaði ekki vel. Við villtumst svona líka rosalega og til að gera langa sögu stutta þá enduðum við á því að hringja í Andy sem hjálpaði okkur að rata í gegnum símann en ákvað svo að best væri að hann kæmi til okkar á bensínstöð og við myndum elta hann heim því það var orðið svo dimmt og svona hehe Það tók hann alveg 40 mín að komast þangað þannig á meðan borðuðum við þann besta chinnamat sem ég hef á ævinni fengið Ekkert smá flottur staður, mjög góð þjónusta og það sem best var, mjög svo ódýrt! Í gær gerði ég mest lítið...var bara hérna heima að chilla. Við fengum mjög góðan indverskan mat í kvöldmatinn því þetta var síðasta kvöldmáltíðin með Veroniku. Eftir matinn fórum við svo í næsta bæ heim til vinkonu Veroniku sem heitir Magdi. Vá ekkert smá flott hús þar! Þar sátum við og spjölluðum fram á kvöld og drukkum hvítvínJ Í dag var sofið langt fram eftir og seinnipartinn fór ég með Eleanor að versla í matinn. Vá svona stóra búð hef ég aldrei séð og úrvalið!! VÁ! Ég átti semsagt að setja í körfuna allt sem mig langar til að borða og ég sópaði ofan í körfuna fullt af mat sem ég hlakka til að smakka Bara gaman að versla í matinn hérna! Eitthvað annað en á Íslandi og hvað þá í Vík í Mýrdal pwHAHA! Það er til alveg fullt fullt af tilbúnum réttum sem líta mjög vel út. Síðan er eitthvað vörumerki sem heitir Weight Watchers sem er með alveg fullt af vörum og tilbúnum réttum fyrir fólk sem er í megrun eða vill borða hollt. Jámm svo eftir verslunarferðina flutti ég allt dótið mitt inn í herbergið mitt og er búin að koma mér vel fyrir. Á morgun er svo fyrsti dagurinn minn sem þýðir að ég þarf að vakna kl 07:00 og koma krökkunum í skólann. Seinnipartinn fer ég svo í viðtal í skólanum til að komast á enskunámskeiðið... Læt þetta duga í bili er að fara borða einhvern æði pæði kjúklingarétt. Þakka enn og aftur fyrir öll kvittin, gleður mig mjög mikið Gaman hvað margir fylgjast með! 
P.s. hérna til hliðar getiði skoðað myndir frá Stonehengeferðinni og einnig myndir af herberginu mínu!
»
20.09.2007 20:37:29 / Helena
Núna er ég búin að vera hérna í þrjá daga og er auðvitað enn að venjast öllu... Ég er ekki enn flutt í herbergið sem ég mun vera í vegna þess að Veronika er náttúrulega ennþá hérna en fer á sunnudaginn. Býst við að ég flytji þá strax þangað inn! Mjög kósý herbergi, hlakka mikið til að koma mér vel fyrir þar Man ekki hvort ég sagði það í síðasta bloggi að ég er ekki enn formlega byrjuð að "vinna". En í morgun vaknaði ég kl 07:00 og flygdist með því sem þarf að gera til að koma krökkunum í skólann. Það felst semsagt í því að fyrst útbý ég nestispakka fyrir þau og síðan vek ég þau bæði og gef þeim morgunmat og by the way þá drekka þau bæði TE?! Veit ekki um eitt einasta barn á Íslandi sem drekkur te hehe...Já svo förum við upp og þau bursta tennurnar (sem er ekki það vinsælasta) nú þá klæða þau sig og ég hjálpa Ross að klæða sig svo að hann fari ekki í buxurnar öfugar og svoleiðis Eftir það eru þau tilbúin og þá fylgi ég þeim í skólabílinn sem stoppar bara hérna rétt fyrir utan. Síðan get ég bara gert hvað sem er, en 2 daga vikunnar mun ég fara í enskuskólann á þessum tíma. Um þrjúleytið fer ég svo út og sæki þau en þá leikum við okkur eitthvað saman til kl. 18:00 en þá koma foreldrarnir heima eða allavega annað þeirra. Þannig það er nú ekki hægt að segja að þetta sé mikil vinna hehe, átti heldur ekki að vera það svosem...En ég þarf líka að þvo fötin af krökkunum og strauja (já þau strauja öll föt) en það er nú örugglega ekki á hverjum degi sem þarf að þvo! Ég þarf ekkert að þrífa en ef ég fer í stuð þá má ég þrífa og fæ borgað extra fyrir það Ég á klárlega eftir að ráðast á prinsessu herbergið hennar Kirsty í næstu viku!! Hún á ekkert lítið af dóti og allt í rúst þar hehe. Þannig þegar ég fer í stuð í næstu viku mun það vera það fyrsta sem verður gert! Ég veit ekki hvort það sé þannig með öll eða flest ensk börn en mér finnst börnin hérna borða mjög óhollan mat. Eiginlega bara svona junk food...T.d. það sem á að vera í nestispakkanum þeirra er: ein samloka með smjöri og skinku (gubb), eplasvali með sykri náttlega, einhver fruitstöng sem er nú kannski alveg holl, lítill snakkpoki og svo súkkulaðistykki eða svona meira kexstykki. Ég persónulega myndi aldrei senda mín eigin börn með þetta í skólann og örugglega margir sem fussa yfir þessu Snakk og súkkulaði er örugglega bara bannað í skólum á íslandi...mig minnir allavega að þegar maður fór í sund á Skógum í gamla daga þá var ekki í boði að hafa eitthvað óhollt meðferðis. Svo það sem þau borða hérna heima á kvöldin eru t.d. einhverjar örbylgjupizzur, pulsur og einhver annar viðbjóður En mér er svosem sama hvað þau borða...þau eru langt því frá að vera feit allavega! En að öðru...Áðan fórum við Veronika til Weston S Mare í Pilates tíma. Það var voða svipað og jóga en reynir sennilega meira á. Veit ekki hvort ég fer áfram í þá tíma því mér finnst þetta eitthvað svo slow líkamsrækt...vil hafa aðeins meira action. En það er margt annað í boði svo nú fer ég að skoða möguleikana. Já þetta er kannski orðin ágætis ritgerð bara. Skrítið hvað mér finnst ég hafa verið lengi hérna, finnst ég hafa komið fyrir löngu síðan en samt eru bara liðnir 3 dagar...Ég neita því ekki að það er erfitt að vera svona langt frá öllum því heima er auðvitað BEST! Finnst mjög mikið þegar ég hugsa um það að ég þurfi að vera hérna í heila átta mánuði og langar stundum bara að hætta við og vera bara fram að jólum. En þetta er örugglega eitthvað sem allir hugsa í svona aðstæðum. Maður hugsar örugglega ekki eins mikið út í það þegar maður er orðinn vanur að vera hér og hefur fundið vini til að eyða tímanum með þegar manni leiðist! Kannski að ég reyni að hugsa þetta í törnum. Ég fæ að fara heim um jólin þannig best að hugsa sem svo að þetta séu bara 3 mánuðir Annaðkvöld erum við Veronika að spá í að bjóða vinkonu hennar með á einhvern bar svo að ég geti kynnst henni! Segjum þetta þá gott í bili, vá hvað þið voruð dugleg að kvitta í síðustu færslu Það gladdi litla hjartað mitt mikið Þannig þið megið endilega halda áfram LaTeR, Helena.
»
18.09.2007 19:06:15 / Helena
Hi there!! Ég er semsagt mætt til Englands og fyrsti dagurinn að renna sitt skeið...
Mamma keyrði mig til Keflavíkur í gær og átti ég flug kl. 16:10. Það var svolítil bið þannig við fórum alveg 30 mín of seint í loftið. Úff hvað það er nú leiðinlegt að fljúga og þá sérstaklega ef maður er einn á ferð. En I-podinn og flugkoddinn gerðu sitt til þess að gera þessa flugferð þolanlega hehe. Ég lenti svo á Heathrow um 21:00 þar sem Eleanor beið eftir mér! Við keyrðum svo beint heim sem tekur um 2 tíma þannig það var mikið spjallað á leiðinni og er hún alveg yndælis kona Það voru allir farnir að sofa þegar við loksins komum heim þannig maður fór bara beint í háttinn. Ég mátti svo sofa eins lengi og ég vildi því að ég er í rauninni ekki byrjuð. Hún Veronika sem er búin að vera au-pair hjá þeim í 6 mánuði er ennþá hérna og fer ekki fyrr en á sunnudaginn næsta. Þannig þegar ég vaknaði um hádegi í dag þá borðuðum við saman hádegismat og spjölluðum svo alveg til kl 15:00 þegar krakkarnir komu heim úr skólanum Hún er ekkert smá fín stelpa og vil ég helst bara að hún fari ekki neitt hehe Hún ætlar svo að kynna mig fyrir vinkonu sinni sem býr 15 mín frá þannig ég er bara strax komin með leikfélaga Á morgun förum við Veronika að skrá mig í enskuskólann og ætlum líka að kíkja smá í búðir því mig vantar t.d. mjög einhverja inniskó hérna því gólfin eru KÖLD Svo á fimmtudaginn þá ætlar hún að taka mig með sér í líkamsræktarstöðina hérna, skilst að við séum að fara í Pilates tíma Jamm, krakkarnir eru algjör yndi! Þau eru búin að vera með smá svona gestastæla síðan þau komu heim sem er auðvitað ekkert annað en eðlilegt Það er sko búið að sýna mér rækilega bæði herbergin og þar vantar sko ekki dótið, tölvuleikina og flottheitin Síðan fórum við út í garð að hoppa á trambólíninu og fórum í smá "tag"! Svo var ég látin spila tölvuleik í einhverri nýrri Nitendo tölvu sem að gengur út á íþróttir og fjarstýringin nemur allar hreyfingar þannig maður stendur á gólfinu og spila t.d. golf, keilu og margt margt fleira hehe. Veronika sagði mér að hún hefði einu sinni farið í box og fengið harðsperrur daginn eftir þannig þetta er að virka eitthvað greinilega Börnin eru yndi, Ross er 6 ára og Kirsty er 9 ára! Þau eru mjög fljót að venjast nýju fólki greinilega og eru búin að toga mig á milli sín í allan dag. Ég á að koma að skoða dótið, skoða myndir, horfa á DVD og spila tölvuleikina Síðan kom pabbinn aðeins heim í dag og er voða fínn eins og þau öll hin! Hann er mjög upptekinn í vinnunni, var t.d. í London í gær og í dag og fór svo strax eftir að hann kom heim í dinner með vinnufélögum. Mér skilst að hann ferðist mikið, fer t.d. til USA í næstu viku... Uuu já, hvað skal segja meira...held að þetta sé bara allt í bili. Hlakka til að fara í skólann á morgun, fer í einhverskonar inntökupróf eða próf til að meta stöðu mína í ensku til þess að hægt sé að setja mig í einhvern hóp. Eleanor segir að enskan mín sé mjög góð þannig hún er kannski ekki eins léleg og ég vildi halda fram. En ég er nú ekki með breskan hreim hehe...Verð örugglega komin með mikinn hreim um jólin ef ekki fyrr Ég er búin að njóta þess í botn að hlusta á krakkana tala ensku, tala með mjög miklum hreim og það er náttúrulega baaaara sætt! Kirsty er hjá mér og langar til að skrifa ykkur a little message eins og hún orðaði það hehe: hello i am kirsty i am nine years old and i like horses. i love helena i have injoyed our first day so far lets hope it gets better. Já þar hafiði það Við ætlum að fara lesa bók um hana Barbie Gott í bili! Held ég geti lofað því að ég verði dugleg að blogga. Er ég það ekki alltaf nema kannski á sumrin?! hehe... Segi bara bless í bili frá Weston Super Mare Og ég krefst þess að ALLIR kvitti!!!
»
09.09.2007 23:28:48 / Helena
að láta vita af sér... Já ég er nú svona nokkurnveginn á lífi. Fór á ball á Klaustri í gær sem var að vanda mjög mjög gaman Hélt smá teiti hér áður en við fórum og var nóg drukkið af hvítvíni, kræsingar borðaðar og spjallað! Svo fengum við lánaða litlu "rútuna" í Kerlingardal og Vilborg keyrði Það eru náttúrulega forréttindi að fá að keyra svona líka hressar og skemmtilegar fyllibittur eins og við erum! Dagurinn í dag var ekki neitt svakalega góður. Eigum við eitthvað að ræða þynnkuna eða?? Nei hélt ekki....Ég ránkaði við mér um 2 leytið og fór þá niður og vakti Bess með því að HENDA mér á hann, æðisleg vakning svona þegar fólk er þunnt Við hittum svo stelpurnar og fórum að borða feitar pizzur á kaffi Halldór. Síðustu vikuna er ég búin að gera nákvæmlega ekki neitt. Eða jú ég og mamma skruppum á Selfoss til tannsa og svo aðeins til Reykjavíkur í útréttingar! Náði meira að segja að bæta einum gallabuxum í Diesel safnið mitt Svo fórum við til ömmu í nýju íbúðina hennar og hjá henni fékk ég þetta fína snyrtiveski (veitir ekki af einu í viðbót fyrir allar snyrtivörurnar) og bók sem ég á að lesa í Englandinu! Næsta vika mun að öllum líkindum fara í leti eins og sú síðasta. Það er svo gott! En svo á föstudaginn þá legg ég leið mína til Englands og verð bara þar Er farin að kvíða ansi mikið fyrir...En kvíði samt bara fyrir því að fara frá öllu hérna. Kvíði engu öðru, finnst ekkert mál að þurfa að búa heima hjá öðrum og passa börn, fara á enskunámskeið og svona. Eina vandamálið er bara það hvað mig langar ekki að fara svona langt í burtu frá öllum vinunum, fjölskyldunni og tala nú ekki um frá honum Imma mínum En innst inni veit ég nú að ég er ekki að missa af neinu. Ég er eitthvað búin að vera að leita að íslenskum au-pair þarna úti en það gengur brösulega. Búin að googla alveg fullt en ég lendi bara á einhverjum gömlum síðum og finn enga sem er þarna úti NÚNA en ekki í fyrra eða e-ð. En þetta kemur bara! Svo er ég búin að vera skoða líkamsræktarstöðvar þarna og er stefnan tekin á að hreyfa sig nú kannski eitthvað þar sem það hefur ekki verið gert í allt sumar Maður verður að fara hægt af stað bara því þolið er jú EKKERT Úff að maður skuli leggja þetta á sig, alla þessa þynnku hehe. Er að spá í að kafa inní spóluskápinn og finna mér eitthvað skemmtó að horfa á þar sem ég er nú ekki að fara að sofa í bráð! Í lokin ætla ég að koma með eina gáfulega spurningu: afhverju er manni svona svakalega heitt daginn eftir áfengisdrykkju?? Er einhver klár þarna úti sem getur svarað þessu? Segi þá bara bless í bili. Já og kíkjið á nýju skoðanakönnunina, hin var orðin úrelt þar sem það er komið á hreint fyrir löngu hvað ég muni gera af mér í vetur.
»
01.09.2007 12:50:33 / Helena
Komin heim! Eftir langt ferðalag, of langt. Við þurftum nebblega að millilenda í Englandi þannig ferðalagið til að komast á Spán voru heilir 12 tímar Ég hét mér því í örvæntingu minni að fara aldrei aftur í flugvél eeen komst svo að því að frá og með 14 september á ég eftir að nota flugvélar meira en nokkrusinni fyrr...þar fór það! Ferðin var ansi fín bara. Mikið verslað og eitthvað legið í sólbaði uppi á þaki í sundlauginni hjá Klótu frænku Við fórum einnig í tveggja daga ferðalag til þess að komast á sólarströnd. Ég held að ég velji samt sundlaugarsólbað fram yfir strandarsólbað. Langt best að liggja bara á læló-i og steikja sig í sólinni, þá er manni heldur ekkert of heitt þar sem vatnið í lauginni er ískalt. Já svo voru bara tekin verslunarmaraþon heilu dagana, hér er einmitt mynd af mér og Björk þegar við vorum búnar að missa okkur aðeins í H&M
 og hér kemur ein af mér og mom sunbathing! 
Jámms, þar hafiði það. Ég nenni ekki að bloggsa meira...Er að spá í að fara í bæinn á eftir, nenni samt engann veginn að keyra alla þessa leið en jæja. Það stendur til að fara niður í bæ í kvöld og taka eitt stykki djamm! Heyrumst eftir helgi! Adios!
»
20.08.2007 13:16:09 / Helena
»
10.08.2007 21:24:49 / Helena
Jæja já, ég er hérna einhverstaðar! Hey það er nú sumar og þá er
maður eitthvað minna frosinn fyrir framan skjáinn. Núna ber mér að
segja létt frá því sem á daga mína hefur drifið, auðvitað þjóðhátíð
og síðan leiðinlegri sjúkrsögu til þess að draga þetta blogg aðeins
niður
Síðustu 2 vikurnar hef ég gert fátt annað en að vinna og svo
hanga og sofa þegar ég var í fríum. Ég brá mér nú samt af bæ einn
daginn fyrir nokkru síðan! Fór í nudd í Laugum Spa og ekki get ég
sagt að það hafi verið gott...kannski bara gott vont. Nuddarinn
tjáði mér það að ég væri yfir meðallagi slæm sem kom mér reyndar
ekki á óvart og þess vegna þyrfti hann að taka virkilega á mér
Sem hann og GERÐI! Við erum að tala um það að hann notaði olnbogana
á sér plús allan sinn þunga til þess að vinna á bakinu á mér Guð
minn góður, þvílíkur sársauki!! Svo eftir allar pyntingarnar fékk
ég að fara í slökunarsalinn og slappa vel af í allskonar pottum,
gufum og herbergi með lazyboy og arin. Allt er gott sem endar vel.
Fannst þetta vera vel 7800 króna virði!
Svo er það þjóðhátíðin! Ég og Helga lögðum í
hann á laugardeginum út á Bakka þar sem flugvélin beið okkar. Eftir
7 óskemmtilegar mínútur vorum við lentar á Eyjunni fögru
(þessar "flugvélar" eru náttlega bara crap sko!) Á
flugvellinum fundum við strax bekkjabíl sem skutlaði
okkur í Heiðartúnið til Egils og Helenu, yndislegu hjónin sem
við gistum í garðinum hjá Þegar búið
var að koma upp helv tjaldinu og skella í sig smá bjór var ákveðið
að halda niður í dal. Þar hittum við Hjördísi og Tinnu sem
komu kvöldinu áður! Svo var bara drukkið enn þá
meira þangað til Andrea og Þorgerður komu loksins!!
Síðan var bara dansað út í eitt við stóra sviðið þar sem Í svörtum
fötum, Á móti sól og Toby (sleeef) fóru á kostum. Síðan fór
undirrituð á flakk með Bessa sínum hressa og fórum við t.d.
baksviðs svo að ég gæti nú knúst hann Toby Verst að ég man ekki
neitt hvað ég ruglaði í liðinu þarna vegna ofurölvunar...Seint og
um síðir labbaði/skrönglaðist ég upp í garð sem er sko mjög löng
vegalengd fyrir svona ölvaða manneskju eins og mig hehe. Þegar ég
vaknaði svo daginn eftir vorum við orðnar 5 í tjaldinu haha! Una og
Þorgerður komu semsagt líka og gistu með okkur. En þröngt mega
sáttir sitja Þynnkan daginn eftir var nú ekkert svo svakaleg
kannski en þó einhver, Helga var svo sniðug að kaupa B-vítamín sem
við gúffuðum í okkur því það á víst að draga úr þynnkunni! Það
lásum við báðar í Vikunni Um daginn var svo farið í sund í
bongóblíðu (ætla aldrei að trúa veðurspám fyrir versló framar)
og tókum smá lit meira að segja Eftir sundið fengum við svo hina
árlegu kjötsúpu sem var agalega góð og fór vel í magann.
Þegar við vorum orðnar vel saddar lögðumst við til hvílu í
tjaldinu! Já síðan var byrjað að skella í sig og tjaldið tekið
niður...farið niðrí dal í brekkusönginn sem var frábær eins og
alltaf! Um miðnætti var kveikt á blysunum í brekkunni sem er
náttlega baaaara geðveikt. Þá fær maður sko hroll og minnir mig að
Lífið er Yndislegt hafi verið spilað og 10.000 manna brekkan tók að
sjálfsögðu undir. Það er á þessu mómenti sem maður ákveður: "og mig
mun aldrei vant' á þjóðhátíííð" eins og segir í laginu! Þannig það
er þá ákveðið, ég fer á næsta ári takk fyrir! Svo var bara skrallað
eitthvað þangað til ég var alveg búin á því og lagði mig í 2 tíma
fram að flugi hehe Svo var bara farið upp á flugvöll
og beðið í 2 tíma eða e-ð eftir fluginu. Andrea og Þorgerður
voru ansiii steiktar og var meðal annars farið ferð niður í Dal að
ná í eitt stykki grjót sem að Andrea var svo "heppin" að fá í
HAUSINN í brekkusöngnum Þegar á Bakka var komið var minns látinn
blása til að gá hvort maður væri kannski í ökuhæfu ástandi sem ég
var enda búin að sofa í 2 tíma Ég og Helga keyrðum svo beinustu
leið heim og þar tók ég tilhlaup upp í rúmið mitt góða og SVAF
Já þannig var nú það...
Núna er það af mér að frétta að ég er að vinna þessa helgi. Nota
bene síðasta helgin mín í sumar Hún byrjaði ekki vel þar sem ég
fékk heiftarlega í magann aðfaranótt fimmtudags. Þvílíkir verkir
maður...Mér var hugsað til þess að læknamiðill sem ég fór eitt sinn
til hafði sagt mér að ég væri með viðkvæmt gall og mér ætti ekki að
koma á óvart ef ég fengi einhverntímann á ævinni gallsteinakast Í
gær leið mér ógeðslega og gerði ekki annað en að sofa til að reyna
að ná mér...mætti svo í vinnu um kvöldið og svaf nákvæmlega ekki
dúr í nótt vegna verkja. Það var því ákveðið að fara til læknis í
morgun og viti menn þetta eru að öllum líkindum gallsteinar. En
gæti þó verið slæm magapest eða magabólgur...á að fara í frekari
skoðun á mánudaginn! Er búin að vera vægast sagt slæm í allan dag
ásamt því að vera með hálsbólgu dauðans og svitna eins og mófó og
hryllir því við því að þurfa að þrauka hér fram á sunnudagskvöld
Vona innilega að þetta gangi yfir í nótt bara...það eina sem hefur
farið inn fyrir munninn í dag er ein súpa í hádeginu, plóma í
kaffinu og svo grjónagrautur sem mamma kom færandi hendi áðan
Mamma mín er best!
Jæja nóg af helvítis sjúkrasögum, til hamingju þeir sem nenntu að
lesa þetta!
Fjúddífjú hvað þetta er orðið langt, var reyndar búin að pára
inn þjóðhátíðarsöguna áður svo þetta tók enga stund
Ætla að fara og leggja á borð, vonast til að komast fljótt upp í
rúm og fá að sofa óáreitt í nótt.
KVITTIÐI nú einu sinni!!! Svo koma myndir og það fullt af þeim á
sunnudagskvöldið eða á mánudaginn kannski...fer allt eftir því
hvort ég verð meðal vor á sunnud. Er samt jafnvel að spá í að setja
myndirnar inn á læsta síðu, þið þarna draugar sem ekki
kvittið fáið kannski bara ekkert að sjá þær, finnst bögg að
vita ekki hver er að skoða eða hvað finnst ykkur að ég eigi
að gera?
Kveðja, Helena.
»
29.07.2007 16:02:54 / Helena
»
26.07.2007 13:31:29 / Helena
Jæja loksins hef ég mig í það að blogga smávegis...
Gærdagurinn fór í LETI og ekkert annað. Sofið ÚT, hangið í
tölvu, horft á sjónvarp aldrei slíku vant og sofið ennþá meira í
sófanum frammi í stofu
Síðasta helgi var mjög mjög fín. Það var haldin hérna sumarhátíð
4x4, full dagskrá yfir daginn t.d. vatnsfótbolti sem var mjög gaman
að horfa á hehe og eitthvað fleira. Um kvöldið var svo kveikt í
brennu hjá tjaldsvæðinu og sungið og drukkið við gítarspil! Ég veit
ekki með aðra en allavega þá tók ég veeel á því í drykkjunni...var
ansi skrautleg og gerði líka ansi skrautlega hluti sem verður ekki
farið nánar út í hér haha
Jamm góðu fréttirnar sem ég lofaði í síðustu
færslu eru þær að ég er LOKSINS búin að finna mér fjölskyldu útí
Englandi. Því var slegið föstu á sunnudaginn síðasta (gat varla
talað við konuna vegna þynnku hehe) svo nú er hún búin að kaupa
handa mér far út og flugmiðarnir komnir og allt saman Núna
hinsvegar fæ ég allt upp í 5 e-mail á dag þess efnis að þessi og
hin fjölskyldan sé interested in me og bla bla bla....Þannig að
áðan eyddi ég prófælnum mínum sem var skrítin tilfinning. Núna
er allri þessari leit sem hefur tekið ALLT sumarið
lokið
Ég flyt út þann 14.september og verð þangað til í maí 2008!
Fæ svo að koma heim um jólin og svo eitthvað eftir jól líka
þegar fjölskyldan fer í frí Þau eru sennilega að
fara eitthvert í skíðaferð og buðu mér að koma með ef ég
vildi, ég get ekki sagt að ég sé mjög spennt fyrir skíðum Ég
og skíði eigum bara engan veginn saman eeeen sjáum til bara!
Svo ég segi kannski aðeins frá fjölskyldunni þá eru þetta hjón
um þrítugt. Konan er að kenna flugumferðarstjórn við einhvern
háskóla og kallinn er einhver svaka buisness maður! Svo þau eru
alveg vel efnuð held ég. Þau eiga svo 2 börn. Stelpu sem er 8
ára og strák sem er 6 ára, bæði algjör krútt Ég fæ svo mitt
eigið herbergi auðvitað með baðherbergi minnir mig, fæ sjónvarp og
DVD spilara og fartölvu líka Gæti bara skilið mína eftir hér
heima...neeei held ekki! Svo fæ ég líka bíl og nokkra ökutíma til
þess að læra að keyra vinstra megin
Þessi fjölskylda býr rétt fyrir utan Bristol á suður Englandi og
það tekur 2 tíma að fara til London! Ég mun svo fara í enskuskóla
þar sem maður útskrifast með eitthvað skírteini að mér skilst Fer
fyrst í stöðupróf til þess að komast að á hvaða leveli ég
er. Svo finnur maður sér eitthvað skemmtilegt að gera líka.
Einhver námskeið, líkamsrækt og eitthvað skemmtó. Vona svo að
ég finni einhverjar íslenskar au-pair gellur þarna...nenni
ekki að vera baaara með úglendingum! Veit einhver hvar maður finnur
au-pair stelpur í Englandi??
Já svo er það gosdrykkja fráhaldið. Það gengur
fjandi vel! Náði að halda mér alveg "edrú" í 2 vikur!!! En ég ákvað
að hafa nammidag á föstudaginn síðasta og leyfði mér að fá 2 glös
af pepsi max með matnum. Fannst það reyndar ekkert spes, er bara
orðin vön því að drekka Kristal plús sem ég hef notað í að trappa
mig niður Svo á sunnudaginn þá var þynnkan svo mikil að ég lét
vaða í eitt glas af Coke light með feita þynnku matnum mínum
Þannig að í dag eru komnar 3 vikur síðan ég hætti formlega.
Jæja þetta er nú komið aldeilis gott. Ég er að spá í að skella
mér í sund og reyna að vinna eitthvað á þessari helv vöðvabólgu sem
er að ganga að mér dauðri! Kannski að maður ætti bara að skella sér
í jóga þarna úti og rifja upp gamla takta. Mér hefur
aldrei liðið eins vel í líkamanum og þegar ég var í jóga
á Selfossi. Mæli með því, það er sko allra meina bót!
Bara rúm vika í þjóðhátíð og svo 25 dagar í Spán!! Ég sé
ferðina í hyllingum. Það verða sko farnar ófáar H&M ferðirnar
og keypt eins mikið og hendurnar geta borið Djöfull á ég það
skilið. Ég er sama og ekkert búin að versla í allt sumar. Sem þýðir
líka það að ég á nóg af pening því debet kortið hefur verið mjög
svo lítið notað enda finnst mér ég alltaf vera í vinnunni og þar er
ég nú ekki að versla neitt. Frídagarnir mínir fara bara allir í
eitthvað mók...svefn og eitthvað rugl. Mér hefur ekki enn tekist að
vakna snemma í fríinu mínu og gera e-ð af viti
Rétt í þessu var að byrja að RIGNA og það ekkert einhverjir smá
dropar. Þetta er bara mesta rigning sem ég hef séð í langan
tíma eða e-ð þannig ég nenni varla í sund kannski styttir
upp á eftir...
Þvílík málgleði alltaf í manni, nú er ég hætt! Til hamingju þið
sem komust í gegnum þetta allt!
Ég fæ kannski eins og nokkur kvitt fyrir þetta
»
24.07.2007 14:14:30 / Helena
ég er aaaalveg að fara blogga og hef góðar fréttir að færa svo
fylgist með
Er á leiðinni í 2 daga frí kl 10 í kvöld. Can't wait!!
Helak...
»
17.07.2007 00:53:20 / Helena
eru best!!
Svaf ÚT í morgun/dag! Það var unaðslegt.
Það er með því besta sem ég geri! Skil ekki morgunhana sem geta
ekki sofið út. Hvernig geta þeir þetta?! Ég tapa
geðheilsu ef ég get ekki sofið út annað slagið. En talandi um
svefn þá hefur dagurinn að mestu einkennst af því. Enda strembin
vinnuhelgi afstaðin og þá tekur það mig alveg heilan dag að ná
mér og nú er ég búin að ná mér haha! Er samt ekki búin að ná úr
mér fýlunni yfir því að hafa ekki komist á djammið sem var á
kaffinu á laugardaginn Guð minn góður hvað mig langaði MIKIÐ! Og
ekki bætti það þegar allir fóru að tala um hvað þetta hefði nú
verið skemmtilegt daginn eftir. Ooooooo hvað ég er svekkt Það
getur vel verið að það verði ekkert svona aftur og það örugglega
ekki næsta mánuðinn sem ég verð hér á landi...Ég á eftir að missa
af helling af djömmum meðan ég verð í Englandi. Held að það verði
t.d. alveg ástæða til að fljúga heim fyrir Raularann
Það er annars voða lítið að frétta
eitthvað...Ég botna annars ekkert í þessu hundamáli þarna á
Akureyri sem átti sér stað á bíladögum. Gaurinn sem átti að hafa
framið verknaðinn kom í Ísland í dag í kvöld eins og einhverjir
kannski tóku eftir. Þetta er svo skrítið, hann segist vera
blásaklaus en samt voru vitni af þessu sem fóru til lögreglunnar!
Og það sem er mest skrítið er það að hundurinn fannst svo sprell
lifandi. Gerðist þetta aldrei eða? Voru þessi vitni bara að ljúga
upp á gaurinn af því þeim var eitthvað illa við hann eða hvað?! Það
væri fróðlegt að vita!
En hver sem það var, hvaða SKEPNA hefur það í sér að sparka
saklausu litlu dýri á milli í íþróttatösku. Andskotinn hafi það, ég
verð brjáluð ef ég hugsa um þetta!!
Að öðru. Það er skrítið að hugsa til þess
að í haust er ég EKKI að fara í skóla í fyrsta skipti síðan ég var
6 ára! Og við erum að tala um að það eru 14 ár síðan ég var sex
Ég er síður en svo leið yfir því að fara ekki í helv skóla. En
hlakka samt engu að síður mikið til að fara í háskóla eftir tæpt
ár, finna mér stað til að búa á í Rvk og svona. En best að bregða
sér aðeins til útlanda fyrst og upplifa eitthvað nýtt. Það ætti nú
bara að vera skylda að fólk drattist til eitthvað til útlanda.
Maður hefur BARA gott af þessu!! Já það eru sko spennandi tímar
framundan. Vá hvað ég hlakka til Ekki er verra að fara líka smá
til Spánar og missa það í verslunarleiðangri Ógó langt síðan ég
hef verslað eitthvað af viti og verður það sko tekið út þann 21 til
28 ágúst
Hérna er mynd af okkur Imma frá því í dag
þegar við tókum okkur fegurðarblund seinnipartinn
Og ein af
Imma, ekki mjög sáttur við að hafa verið vakinn með
flassi.
Það er sennilega komið nóg af bulli í
kvöld...
Helak svefnsjúka kveður í bili! Verið nú
dugleg að kvitta elskurnar
P.s. 11 dagar í fráhaldi frá Pepsi Max,
Coke og öllum svoleiðis viðbjóði
»
Síður: 1 2 3 ... 16
|
Dagsetning
8. febrúar 2012
|